Lífið er frábært
08.01.2009 19:37:06 / steinabara

3 ára stjórnunarmeistari

Samtal móður og stjórnunarmeistara:
Mamman; Jæja Kolbrún nú leggst þú niður og ferð að sofa
K; Nei ég stjórna mér sjálf
M; Ee nei ég er mamman og ég ræð
K; Nei ég stjórna mér og þú stjórnar þér.
M; Nei ég ræð hér og þú átta að fara að sofa
K; Nei ég stjórna mér sjálf, þú ræður ekki yfir mér
K. hleypur fram og pabbinn frekar hissa ; Hva ert þú ekki að fara að sofa?
K; Nei mamma stjórnar mér ekki, ég stjórna mér sjálf.
Þegar hér var komið voru foreldrarnir í hláturskasti
K; kennarinn minn segir að ég sé stjórnunarmeistari
M hugsaði, uh kemur á óvart

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 13:24:16 / steinabara

Gleðilega jólarest

Ég óska ykkur öllum gleðilega jólarest.  Ég er búin að hafa það frábært um hátíðina, eftir að hafa unnið yfir mig og legið veik eina frídaginn sem ég átti fyrir jólin, en þetta reddaðist allt saman og við áttum bara mjög gleðileg jól.  Einar og Hege vinafólk okkar frá Noregi voru hjá okkur í mat í gær ásamt Pétri og Olgu og var mjög ánægjulegt bæði að horfa á þessa listakokka elda og svo einnig að borða matinn sem var frábær.  Svo nú er bara að vinna í tvo daga og svo aftur í gott frí.
Vona að þið hafið það eins gott og ég.
Jóla kveðja.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 12:13:49 / steinabara

Kreppu kryppa

Andsk.... banka kreppa, ég hefði átt að vera að pakka niður núna og á leið til NY en sit þess í stað heima með veikt barn og bíð eftir vaktaskiptum svo ég komist í vinnu:^)  Vildi nú miklu frekar vera á leið til útlanda með vinkonunum,þó svo það sé yndislegt að fá svona extra tíma með dúllunni minni, en við förum bara þegar við verðum 45 ef við verðum ekki öll orðin gjaldþrota út af þessu andsk... pakki sem er búið að vera að leika sér að peningunum og skilur okkur svo eftir í súpunni:^)

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 12:08:18 / steinabara

Innbrot

Það var brotist inn í bílinn hans Viktors í fyrri nótt, hann lagði bílnum niðri í bæ, þjófarnir tóku húslyklana hans og upplýsingar um heimilisfang,lögreglan sagði að þeir væru greinilega með plön um að brjótast inn hjá okkur svo við þurftum að skipta um sílender hér heima og það er nú ekki gefins, en maður er víst ekki tryggður ef "brotist" er inn hjá manni með lykli og allt hreinsað út, svo það borgar sig að vera safe.  En mikið rosalega er mér búið að líða illa vitandi að einhver er að plana það að brjótast inn hjá mér, ég hef alltaf verið örugg hér í húsinu en nú kippist ég við við hvert hljóð.  ARRGGG þoli það ekki að það skuli vera til fólk sem brýst inn á heimili eða bíla fólks til að rústa og ræna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 17:29:48 / steinabara

Afmælisgjöfin

jæja þá er ég búin að skila afmælisgjöfinni frá Rikka  Ég sagði honum að nú yrði hann að kaupa handa mér afmælisgjöf því ég væri búin að skila farseðlinum og hann sagðist nú aldrei hafa skilað gjöf frá mér en ég benti honum á að þar sem hann ættlaði að gefa mér far og gistingu í NY þá gæti ég nú alveg farið, en gistingin kostaði hann 75þús fyrir 4 nætur. hehe hann var alveg sáttur við það að ég hefði skilað miðanum eftir að hafa heyrt verðið.  Svo datt mér í hug í morgun hvort ég ætti ekki að fá hann til að gefa mér hálfann nuddbekk og ég nota svo afmælispeninginn til að borga hinn helminginn og þá get ég farið að heila og þjálfa mig í nuddi.  Er það ekki bara svolítið sniðug hugmynd hjá mér???              

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 20:11:36 / steinabara

Týpískt

Við hittumst í gær vinkonurnar sem ættluðum saman til NY og ákváðum að fresta ferðinni fram á vor og svo hringdi Berglind vinkona mín í Icelandair í dag til að breyta en þá gilda miðarnir okkar bara fram að áramótum því þetta voru special price miðar  Stelpurnar vilja rífa miðana og hætta alveg við en ég og Berglind viljum frekar fara þar sem við erum búnar að borga töluvert inn á gistinguna og ég búin að safna því sem ég ættlaði að eyða í ferðina og erum þá að spá í að flýta ferðinni, oh ég veit ekki hvað ég á að gera, ég hef ekki kost á að kaupa bara aðra ferð í vor og finnst alveg glatað að tapa þeim peningum sem ég er búin að leggja í þessa ferð....

Svafa það er alveg pláss fyrir þig;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 21:08:13 / steinabara

Lífið er yndislegt

Það er búið að vera nóg að gera, bjargar okkur á stofunni að við erum ekki með okur verð svo það er búið að vera fínt að gera.
Við Kolbrún fórum í afmæli til Soffíu vinkonu okkar í gær, hún varð 39 í gær og þar var ein sæt skvísa sem varð 18 og svo fórum við í afmæli til Hörpu Lindar frænku okkar sem varð 9 ára, þannig að við sluppum við að elda mat og borðuðum bara afmælis kræsingar.
Enn er ekki komið á hreint hvort við förum saman æsku vinkonurnar til NY, einhver kreppuhræðsla í þeim skvísunum, ég er allavega komin með farseðil og nokkra dollara og svo er bara að vona að þeir fari nú að gera eitthvað í þessu hér á klakanum, en eins og völvan segir þá er ljós við enda ganganna, þetta reddast;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 10:08:35 / steinabara

Katrín 13 ára í dag

Já snúllan mín hún katrín er 13 í dag, ótrúlega fljótt að líða, fórum í gær á Carpe diem og fengum alveg ferlega góðan mat, ákváðum að fara þangað þar sem pabbinn verður ekki heima í dag og missir því af afmælinu svo því var bara flýtt um einn dag og svo kemur stórfjölskyldan í kaffi í kvöld.
Kolbrún var voða prúð og stillt í matnum, en stóð upp í miðjum mat og sagði "baða aðeins að teygja úð méð" hehe bara krútt.

Annars eyddum við hluta af sunnudeginum á slysó, katrín var að hlaupa í símann sinn á laugardaginn og sparkaði í vegg í æsingnum en kvartaði svo sem ekki fyrr en á sunnudagsmorgun, við fórum í sund og hún rak tánna í einhverja stelpu og eftir það var hún að drepast enda kom í ljós að hún var tábrotin og fékk umbúðir og má ekki fara í sund eða leikfimi í 10 daga og það leiðist henni ekki, tala nú ekki um að mamman keyrir hana og sækir;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 15:44:55 / steinabara

Hreindýraveiði

Fórum af stað eftir vinnu á fimmtudag, ég og Rikki, Pétur bróðir hans og Olga konan hans, fórum á Selfoss þar sem við borðuðum á thailenskum stað, alveg ágætt,  héldum svo af stað austur í Skaftafell, Olga bauð mér upp á hvítvín á leiðinni og svo var Mama mía á fullu í græjunum og þeir voru sammála um að þetta væri furðulegasta veiði ferð sem þeir hefðu farið í.  Gistum á hótel Skaftafelli og vorum svo lögð af stað aftur um 9 á laugardagsmorgun og þegar austur var komið fórum við og skoðuðum Kárahnjúka og brunuðum svo í Bónus og svo heim til vinahjóna okkar þar sem Rikki tók til við að elda og við konurnar fórum að búa um okkur og koma okkur fyrir.  Um kvöldmat komu svo ein hjón frá Búðardal og þá var drifið í að borða og svo eftir matinn var spiðlað á gítar og sungið fram að miðnætti þá stóð ég upp og rak alla í rúmið (var misvel tekið hehe) en allir glaðir kl.8 á laugardaginn.  Vorum lögð af stað um 9 upp á heiði en þar sáust engin hreindýr svo ég sagði að þetta væru örugglega bara sögusagnir það væru engin hreindýr á Íslandi svo karlarnir fóru í það að finna hreindýr sem við fundum svo rétt utan við Egilstaði.  En við þurftum að flytja okkur af einni heiði yfir á aðra og þar var allt fullt af körlum að bíða eftir færi á hjarðirnar svo við fórum á einn annann stað þar sem við vorum komin um kl.18 og við gengum upp fjall, niður hinu megin inn dal, yfir dalinn og svo að lokum upp annað fjall.  Komum upp þar um 21,30 verulega sveitt og þreitt en þvílík vellíðan, alveg æði.  Blessunarlega fóru ekki allir þessa göngu því hinir þurftu að keyra í tvo tíma til að komast upp á fjallið hinumegin og taka á móti okkur, Olga var alveg stjörf þegar við komum og að krókna úr kulda því hún var svo hrædd um okkur enda orðið kolniða myrkur og fekar kalt. Við vorum ekki komin heim fyrr en um miðnætti og þá fóru bræðurnir í það að elda hreindýrasteik sem þeir tóku út kvöldinu áður og svo var auðvitað sungið og spilað fram eftir nóttu en ég var fljótt búin á því og laumaðist inn að sofa.  Svo fóru karlarnir aftur af stað á sunnudag og fengu þá dýr en við Olga fórum heim með flugi. Annars var sól og logn alla helgina og bara algert æði og við erum ákveðnar í að fara með aftur á næsta ári þó svo að karlarnir hefðu sagt að þetta væri svona one's in a life time ferð 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 11:05:10 / steinabara

Aloe vera fréttir

Jæja þá er ég á sjötta degi og er orðin léttari en ég var á níunda degi síðast svo ég er bara nokkuð ánægð með mig, svo er ég ákveðin í að halda áfram þar til allt er farið. Mæli með þessu ef fólk þarf hjálp til að koma sér af stað í að missa einhver kíló.

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 20:06:23 / steinabara

Megrun

Jæja þá er ég byrjuð á einn einum kúrnum, reyndar aftur í Clean9 frá Aloe vera og nú ættla ég að halda áfram á shake og fleiru sem fylgir eftir þessa 9 daga, er sko að fara til NY með æsku vinkonunum í nóvember og ég ættla að vera geðveikt flott;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 11:23:08 / steinabara

Veikindi og fló

Hér er sko búið að vera nóg að gera, haldiði ekki að :evil: kettirnir hafi ekki komið með fló inn til okkar og ég er búin að þurfa að þrífa allt hátt og lágt (verst hvað langt er til jóla) mesta erfiðið var þó að þvo kettina, ég í gúmmíhönskum og Katrín á sturtunni og hvæsandi og urrandi kettir að berjast við að komast upp úr baðinu en það gekk á endanum og svo er bara að vona að það hafi virkað. Karlinn var sendur út að eitra Stara hreiður í þakskyggninu en þar sem hann er svo lofthræddur fékk hann leigjandann í kjallaranum til að fara upp fyrir sig að eitra og svo var húsið hreinlega allt eitrað að utan svo það er eins gott að allt sé orðið flóarlaust.  Þvílíkur þvottur sem fylgir svona löguðu, vissi ekki að við ættum svona mikið af teppum og púðum sem köttunum þykir gott að sofa á.
Svo ofan á allt er litla skottan orðin lasin eftir nokkra daga á leikskólanum og karlinn farinn í veiði fram að helgi svo það er gott að eiga stóra stelpu sem er dugleg að hjálpa til og getur passað annars væri ég í slæmum málum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 17:35:29 / steinabara

Geislabaugur

Hann sonur minn er alveg yndislegur eins og allir vita en nú er geislabaugurinn eitthvað farinn að síga8|  Eins og þið hafið séð hér fór hann á Hróaskeldu með vinum sínum og var á aðra viku voða gaman og kom alsæll heim eftir góða ferð nema að um daginn var ég að taka til í póstinum og blaða drasli heima og opna alla reikninga og líka hans ( ég veit, á ekki að opna hans) sé þar á visa reikningnum að hann hafði keypt ferð með Sterlingairlines (var eina færslan á reikningnum)
Ég; Hvað varstu að kaupa hjá Sterling?
Hann; Mamma þú átt ekki að opna póstinn minn, en ég keypti flugferð
Ég;Hvað, hvert?
Pabbinn; Fórstu til Amsterdam?
Hann; U já
Ég átti ekki orð og það rigndi auðvitað yfir og hvað og hvernig og hvers vegna sagðiru MÉR það ekki
Svarið var; Vildi ekki valda þér áhyggjum
Hann fór semsagt ásamt vinum sínum á Tecnofestival í Amsterdam, gistu á Farfuglaheimili og skoðuðu sig um, en ég var nú rólegri þegar ég komst að því að pabbi vinar hans sá um að panta allt fyrir þá og var með þeim í að plana, en ég var pínu sár að hann skildi ekki treysta mér betur, en jú viðurkenni að ég hefði haft smá áhyggjur.:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 19:59:22 / steinabara

Hárgreiðslustóll til leigu

Ef einhvern langar að starfa sjálfstætt á hárgreiðslustofu í Garðabæ, þá er ég með stól til leigu á mjög sanngjörnu verði, ég er að fara í frekara nám og vantar einhvern inn fyrir mig og svo er bara nóg að gera á stofunni og ég er ekki að ráða við það ein, svo ef þið þekkið einhvern duglegann og áhugasamann hársnyrti þá endilega hafið samband.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 16:13:04 / steinabara

Sangría

Sangría
1/2 sítróna niðurskorin
1/2 appelsína niðurskorinn
1/2 lime niður skorið
tæplega 1 bolli grand mariner
1 1/4 flaska rauðvín
ca 1 líter 7 up
klaki.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Um mig
Ég heiti Steina Bára, hársnyrtir, þriggja barna móðir. Börnin mín; Viktor 21, Katrín 15 og Kolbrún 5
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 17437